18.11.2011 18:35
Gögn
Það er svosem ekki margt fréttnæmt að gerast í kanínuheimum í "vorblíðunni", enda eru engar fréttir góðar fréttir. Aðalfundurinn fór auðvitað vel fram í sumar og mest var rætt um innflutningsmálin þó svo engin lausn sé í sjónmáli. Vandamálin eru bæði þau að kostnaður er mikill og hefur aukist eftir gengishrun og pappírsvinna og leyfi eru ekki auðfengin hjá Mast.
Ég sett inn hérna nokkur skjöl undir flipann "skrár" hér fyrir ofan, svona fyrir þá sem hafa gaman af að kynna sér staðreyndir um kanínur og eða þá sem eru að velta fyrir sér e-s konar fyrirtæki, þá eru þarna upplýsingar um stofnun slíks og gerð viðskiptaáætlana. Þær eru ekkert almennilega flokkaðar þarna, ég kann lítið á þetta kerfi, sumt eru glærusýningar. Þið smellið bara eins og enginn sé morgun dagurinn og þá kemur þetta í ljós!
08.07.2011 01:18
Aðalfundurinn
Aðalfundur Kanínurækarfélags Íslands
Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 14.00 laugardaginn 23.júlí og dagskráin er hefðbundin sem hér segir:
1.Skýrsla stjórnar um starfsemina frá síðasta aðalfundi.
2.Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
3.Kosningar í stjórn, varastjórn. skoðunarmanns reikninga og varamanns.
4.Ákveða árgjald KRÍ til eins árs.
5.Ákveða þóknun stjórnar - og nefndarmanna.
6.Umræða um innflutningsmál
7.Sýnikennsla í eyrnamerkingum á kanínum
Léttar veitingar verða í boði KRÍ
Að loknum fundi fá gestir væntanlega að skoða búið í Vatnsholti, rölta um og ræða málin, ekki veitir af!
Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og munið að ekki er nauðsynlegt að vera stór-kanínu bóndi til að eiga erindi á fundinn. Fólk sem er rétt að stíga sín fyrstu skref í þessu eða þeir sem hafa áhuga á að kynna sér möguleika kanínuræktar er hvatt til að koma.
Kveðja stjórnin
27.06.2011 16:22
Aðalfundur KRÍ framundan
Komiði heil og sæl öllsömul.
Hálfgerð deyfð hefur verið yfir síðunni okkar en allt er þetta til bóta.
Vegna ástandsins í þjóðfélaginu ákváðum við stjórnin að sleppa Kanínudeginum í ár en halda bara betur uppá hann næst.
Aðalfundur er framundan og verður hann haldinn Laugardaginn 23 Júlí næstkomandi að Vatnsholti í Villingarholtshreppi en þar er margt að sjá og verður spennandi fyrir alla að berja augum öll þau dýr sem á þeim bæ eru.
Dagskrá verður auglýst síðar en þeir sem vilja halda erindi og koma frá sér fróðleik varðandi kanínur og annað tengt endilega sendið okkur hjá Krí póst.
Allir eru velkomnir:)
Stjórnin
